|
Könnun
Hvert yrði þitt fyrsta val um hluti til að taka með sér á eyðieyju?
Kryddhylluna í eldhúsinu þínu..
1 atkvæði
Mig:)
2 atkvæði
víbradorinn þinn
0 atkvæði
Sveðju
0 atkvæði
Lappan þinn
0 atkvæði
Ipodinn þinn
0 atkvæði
Maskarann þinn
0 atkvæði
Lakkríspoka
0 atkvæði
Keðjusög
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 4
Talning
Fyrir 734539 dögum
|
12.10.2008 23:48:09 / soffialitla
Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að Swingtown er geggjaður þáttur Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að niðurrif er mesta tilgangsleysi í heimi Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að gott kynlíf er gulli betra Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að spegillinn er góður vinur minn Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að vinir mínir elska að vera vinir mínir Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að barnið mitt hlær þegar hún hnerrar Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að maðurinn minn hlýjar mér ávallt Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að maður má sína öllum umhyggjuÉg hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að ég er með allt sem ég þarfnast Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að góð knús eru alltaf ókeypis Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að sama hvað ég reyni kemur sólin alltaf upp Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að skjár einn er best í heimi Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að fjölskyldan mín stendur saman Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að ég syng vel og nýt þess Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að fyrirgefningin frelsar burt óttannHvers vegna er þetta allt saman merkilegt... ? Vegna þess að þetta eru allt hlutir sem ég hef upplifað og komist að án þess að borga krónu 
Knúsumst, hlæjum og chillum saman..Nálægðin skiptir öllu máli..Viska, umhyggja og lífskraftur alla leið elskurnar...That's how it was intended all along...
Þannig að ef að þú ert búin/n að vera í tölvunni allt of lengi núna..Stattu þá upp, slökktu á tölvunni og hringdu í einhvern/einhverja sem þér þykir vænt um og njóttu þess að vera eirtaklingur með öllum þínum kostum..´Hvað er það sem skiptir svo höfuð máli þegar upp er staðið?
Er það ekki tíminn sem maður varði með fólkinu sem manni þótti vænt um? Munið að rækta það af alúð ..Þar liggur nefnilega raunverulegur fjársjóður lífsins.. Það er það sem við tökum með okkur þegar við förum upp....
»
03.10.2008 22:03:57 / soffialitla
Jáh, Guð er dáldið fyndinn, eða öllu heldur Guðinn hans Sigga.. Hann fór með bílinn í skoðun, eitthvað sem hann/ við hefðum átt að vera löngu löngu búin(n) að gera..
Nema hvað að blessaður drengurinn þurfti að skilja bílinn eftir í ljósi þess að garmurinn var að hruni komin.. Ekki nóg með það að þá var ekki einu sinni stungið uppá því að hann færi með bílinn í Sorpu eða eitthvað og fá fyrir hann pening fyrir að skila honum..Það er einhver 15 til 20þúsund kall..
Þetta er náttúrulega bara hlægilegt..
Svo kom snjókoma daginn eftir...
Thank u Mr. God..You are being very helpful :*
Ekki það að ég sé á nokkurn hátt pirruð, ég tók og tek þessu með mínu mesta æðruleysi og geri mér fyllilega grein fyrir því að það var áhætta að vera ennþá að keyra drusluna, eins og ég er farin að kalla hana núna..Og er bara fegin að nú sé komin tími á að leita að nýjum bíl..
Endilega hjálpaðu okkur elsku Guð að finna annan bíl, væri fínt ef hann myndi eyða minna bensíni en druslan..Takk*
P.s.. Ástarþakkir fyrir að kíkja á bloggið mitt elsku vinir Ég kann að meta það*
»
21.09.2008 22:05:02 / soffialitla
Það er ekkert smá yndislegt að vera til. Ég er að læra að aðskilja mig frá aðstæðum, finn að nýji Guðinn minn dýrkar mig og vill bara að ég sé hamingjsöm og ég finn þakklæti á hverjum einasta degi þegar ég held á litlu prinsessunni minni. Núna sit ég uppí sófa, ótrúlega endurnærð eftir dásamlega ráðstefnu sem kveikti enn heitar á ljósi æðri máttar í hjarta mínu og ekkert smá hugfangin af lífinu mínu núna. Núna. Núna. Núna. Núna Skiljið þið hvað ég meina... Það verður ekkert "þegar að eitthvað gerist blah, að þá verð ég hamingjusöm"-kjaftæði í gangi (alla vega ekki meðvitað) sem truflar það að ég geti verið hamingjusöm í núi mínu*
Það er nefnilega svo merkilegt að ef ég er mikið að eltast við eitthvað handan við hornið sem gerir mig happy, að þá virðist vera sem að þegar ég svo loksins fæ það, að þá finn ég mér bara eitthvað annað til að eltast við. Þetta er ekki endilega andlegt mein, eða ég veit það ekki, þetta alla vega er ekki eitthvað sem ég vill gera lengur...Og vitiði hvað, mér gengur bara betur að njóta augnabliksins ef eitthvað er, hvort sem ég sé með þetta sem ég er að bíða eftir eða ekki.
Samt ekki misskilja mig. Það er æðislegt að vera með fullt af draumum, markmiðum og vissum tegundum af væntingum, það er ekki vandamálið, ég er með fullt af svoleiðis.
Það snýst bara ekki allt um að ná ekki að verða hamingjusöm "fyrr en eitthvað" eins og mér var svo tamt að gera hérna áður fyrr.
Ég elska að vera í AA og NA, ég elska að vera í al-anon, ég elska yndislegu fjölskylduna mína og ég elska að vera ég*
Takk Guð fyrir að gefa mér tilfinninguna fyrir því að hlusta á sjálfa mig eins og hlutirnir eru..Því það hjálpar mér að skynja heiminn eins og hann er...*
Takk fyrir heilbrigða barnið mitt og hvað allt gengur vel*
Munið líka elsku fólk að ef þið eigið eitthvað erfitt með að finna Guð einhvern daginn eða augnablikið, að finna hvað þið eruð raunverulega þakklát fyrir í hjartanu ykkar... Það opnar dyrnar að kærleika, sem er það eina sem Guð er, endalaus kærleikur og ótakmarkað þakklæti fyrir að þú viljir eiga hann að...*
Love you guys*
Hérna er mynd af mér sofna í fyrsta skipti með Lilju Sóley nýfæddri..
»
18.09.2008 10:57:13 / soffialitla
»
15.09.2008 16:16:10 / soffialitla

Lilja prinsessa hjá mömmu sinni einn morguninn* 
Hérna er hún hjá Guðnýu, guðmóður sinni* Og þarna er hún að leika sér í teppinu sínu, þar að seigja, áður en hún fór að rúlla sér út um allt.. 
Og hérna hjá mömmu sinni í útskriftarveislu pabba síns* 
Og hérna hjá pabba sínum
»
15.09.2008 14:59:58 / soffialitla
Hér er smá innsýn inní heiminn minn, langaði að gefa ykkur sem ég er ekki búin að dálítið lengi, aðeins upprifjun á hver ég er, og jafnvel meiri innsýn en þið höfðuð
Uppáhalds matur:Humar og lambakjöt
Uppáhalds ávöxtur: Jarðarber, mango, bananar, melónur og allskonar ber
Uppáhalds veitingastaður: Bara nærri því allir austurlenskir staðir og svo auddað Grillið
Uppáhalds drykkur: Yogi lakkrís te,allskonar topp tegundir og svo auddað kók..Svo finnast mér margir orkudrykkir líka ágætir..Og KAFFI náttúrulega*
Uppáhalds veitingastaður sem er ekki lengur til: Ég verð bara að seigja Hard Rock sem var í Kringlunni..
Uppáhalds nammi:Malterses kúlur og Hexehil, sykurpúðar og súkkulaði fondue með ávöxtum*
Uppáhalds snakk:Beikonbugður með brie osti, salt Lays flögur, nachos og smjörpopp. Uppáhalds sjónvarpsþættir: Dexter, Friends, Swingtown, That 70's Show, heimildarmyndir um kattardýr, hvali, hákarla og slöngur og afkvæmi dýranna.
Uppáhalds leikarar: Adam Sandler, Jennifer Anioston, Michael C. Hall (Dexter), Mila Kunis, Jack Black, Jack Nickholson, Chris Farley, Cameron Diaz, Trey Parker & Matt Stone (South Park sköpuðirnir), Natalie Portman, Davið Spade og margir fleiri..
Meira efni um slíkt síðar...
Chao*
»
15.09.2008 14:56:51 / soffialitla
Ég er meira og minna búin að vera heima og dúlla mér með Sigga sem var í fríi síðustu 3 vikurnar. Hann er byrjaður að vinna aftur núna.. Það var rosa huggó að vera heima þennan tíma. Ég fékk að sofa helling, fara dáldið á fundi og Siggi var heima með litlu, við gerðum fullt af huggulegum hlutum og nutum þess að vera foreldrar og líka sem par, því það er líka mjög mikilvægt..
Annars er ég núna að stefna á að fara á hádegisfundi í Rúgbrauðsgerðinni á næstunni, bæði í aa og al anon, þar sem ég er eiginlega komin í 3.sporið þar..
Alla vega, hafið það mega gott, og gleðilegt haust, love you guys, og takk innilega fyrir að tékka á mér, you make me feel so loved
p.s, ekki gleyma að njóta þess að vera mannleg*
»
15.09.2008 14:44:51 / soffialitla
 Og þarna eru mamma, amma og Lilja Sóley alveg glæný... Þetta var rosa góður dagur*
»
15.09.2008 14:28:10 / soffialitla
 Svon var hún sæt þegar við skírðum* Ekkert smá yndislegur dagur   Allir rosa glaðir*
»
15.09.2008 14:25:02 / soffialitla
 Jáh, það var ekkert smá merkilegt...Og vá hvað það var lærdómsríkur tími* Takk Guð*
»
15.09.2008 14:22:31 / soffialitla
Langaði bara að setja inn eina megakrúttlega mynd af Lilju síðan í vor:*
»
24.08.2008 11:05:53 / soffialitla
Takk fyrir að kíkja alltaf á mig Þið eruð baaaara yndisleg* Jáh, ekki hef ég verið þekkt fyrir að tala mikið um íþróttir, en ég er ansi hrædd um að ég sé nokkuð sátt við að litla sæta þjóðin í norðri sé komin í silfursætið á ólympíulekinum
Mig dreymdi það á föstudagsnóttina að við myndum vinna, gaman að segja frá því..
En jáh, litla baunin mín er orðin sjö mánaða og hún er sko ekkert smá hress og kát* Hún er farin að seigja mamma, babb og hlær og hlær og hlær...
Já, svo er hún voða mikill mömmubangsi og ég hefði aldrei getað trúað því hvað er hægt að elska eina manneskju svona mikið.. Finn hjarta mitt stækka á hverjum degi og finn að Guð er alltaf að hjálpa mér að þroskast og dafna andlega sem og líkamlega.
Lilja Sóley er algjörlega ljósið í lífinu mínu og ég er ekkert smá þakklát fyrir að hún skyldi leyfa okku að vera foreldrar sínir*
Lífið getur verið svo rosalega fallegt ef maður leyfir þakklætinu að blómstra í lífi sínu og biður fyrir því að vera jákvæður.. Svo þegar maður gerir mistök að þá er manni bara ætlað að læra af þeim fyrir næsta skref í lífinu..Það er bara þannig* Ég þarf rosa mikið að minna mig á að sleppa því að gera einhverjar kröfur á mig þessa dagana, en ekki misskilja mig, mér er alls ekki sama hvernig ég geri hlutina. Þessa dagana er ég í 1.sporinu í al-anaon og er að fatta það hvað ég er gjörn á að gera mér lífið leitt með því að setja of háar kröfur á mig og vera svo að brotna undan þrýstingi og rífa mig niður fyrir það...Það er alls ekki gott né heilbrigt...Fyrir neinn*
Þess vegna er ég að prófa að sleppa kröfum. Ég bið í staðinn fyrir því að vera vandvirk og skynsöm og að Guð hjálpi mér að hafa hlutin einfalda og að ég öðlist kærleik í öllum aðstæðum dagsins*
Ég hef trú á því að það hjálpi*
Ég finn mun strax*
Svo var ég að uppgötva aftur tónlistarmanninn Petri Suhonen..Svona ambient techno snillingur.. Hann er fæddur '80 og er finnskur
Hann er ekki með einhverja tónlistarmenntun en er alveg rosa fær í að búa til frábæra tilfinningu með músíkinni sinni*
Hann er með þeim betri sem hafa addað mér sem vin á myspace*
Jáh, og ég er komin með nýja síðu á myspace.
Urlið er myspace.com/hjartanebbi
Takk æðislega fyrir að kíkja á mig, búið að vera mikið líf og fjör þetta sumarið og vona ég að þið séuð búin að hafa það yndislegt*
Þangað til næst...
Knús og mömmukossar
  Jáh hún er bara yndislegust*
»
19.07.2008 19:56:42 / soffialitla
Jáh, við lifum svo sannarlega á breyttum tímum, 21 öldin er sko alveg að gera ýmislegt sem gæti haft margskonar afgerandi afleiðingar... Til dæmis er bensínverð svo hátt að maður þarf næstum því að vera vinna sem vændiskona til að geta keyrt fram og til baka úr vinnunni, mengun er eitthvað sem allir eru orðnir óþægilega vanir í þessum heimi, og útlitsþráhyggja samfélagsins hefur haft þau hrikalegu áhrif að börn, yngst mælt 8 ára, þjást af megrunaráráttu (örugglega til þess að geta litið betur út í "g-strengjunum" sem seldir eru í top shop..!), og svo virðist sem skuldir fortðiðarinnar hjá okkur íslendingunum séu að tortrýma íslensku krónunni.. Hvað er í gangi? En eitt er ég ánægð með ...Loksiins meiga samkynheigðir gifta sig..Allright
»
09.07.2008 17:33:07 / soffialitla
Takk fyrir að kíkja á mig, voðalega eru þið yndisleg:>
Munið að hlæja, vera í sólinni, rækta fjölskyldu- og vinatengsl og rækta ykkar anda..
Munið að litlu hlutirnir skipta máli og að það sem þú gerir í dag hefur afleiðinngar fyrir framtíðina, hvort sem þú verðir var við það eða ekki*
Munið að hlusta á tónlist sem lætur ykkur líða vel og gefið áfram vonina þannig að þið finnið tillgang með krafti ykkar og finnið enn frekar að það sé einhver tilgangur með tilveru ykkar*
Ég veit það alla vega að ég gæti lítið um lífið sagt ef að ég hefði ekki allt þetta yndislega fólk í kringum mig sem gefur lífi mínu gildi með hlýju sinni og þáttöku*
Gefðu þér svo líka tíma fyrir þig í önn dagsins..Það þarf ekki meira en ca 10 mín til að koma sér á jörðina aftur og sleppa því að sveiflast með umhverfi og aðstæðum...Nema ef um er að ræða eitthvað erfiðar, óþæginda-aðstæður...Muna þá að samt sækja sér þann kraft og hlýju sem maður þarfnast til að komast yfir hindranir...Því þegar betur er að gáð, að þá erum við bara mannleg eftir allt saman*
Og ef að þér finnst þú núna búin(n) að vera í tölvunni allt of lengi, slökktu þá bara á henni og gerðu eitthvað sem þér finnst skipta máli..Eitthvað sem þú veist að skilur eitthvað gott eftir sig...
Þér á sennilegast efir að líða betur*
Kossar og knús+
Soffía sæta*
»
02.07.2008 23:31:52 / soffialitla
Er það að eyða ekki meira en maður á..? Er það að stunda bara kynlíf með einhverjum sem maður elskar of vill eyða lífi sínu með..? Er það að fá sér ekki stöð 2 ef maður veit að maður mun hvort eð er ekki hafa tíma til að horfa á það? Er það að vera alltaf stundvís? Er það að nota aldrei meira af neinu en maður þarf..? Er það að gefa öllum sem hafa gefið manni eitthvað einhvern tímann eitthvað líka? Er það að hugsa vel um heilsuna og fjölskyldu sína án tillits til hvað maður raunverulega vill sjálfur..? Á maður að vera ópersónulegur við fólk sem maður þekkir ekki? Er það að hlusta bara á fallega tónlist sem lætur manni líða ljúflega í kroppnum sínum? Er það að stunda líkamsrækt minnst 3svar viku og fara í sturtu 5 sinnum í viku? Eða er það að gera ekkert í óhófi og reyna að vera venjulegur ásamt því að gera alltaf það sem er rétt? Þetta eru alveg dæmi um spurningar sem maður spyr sig oft án þess að taka eftir því. Oftar en ekki eru til afar tilbúin svör við þessu spurningum sem maður vill að aðrir sjái að maður viti einnig sjálfur.. En er ekki sannleikurinn sá að það eru til mörg ólík svör við þessum einföldu hversdagslegu spurningum, eftir því hver maður er, hvaðan maður er að koma og svo framvegis.. Það virðist nefnilega,hef ég stundum tekið eftir, ennþá vera til þessi tegund af fólki sem heldur enn fast í "hefðbundnu svörin" við SVONA spurningum og vangaveltum.. Þau hafa líka þann vana að reyna að láta manni líða skringilega með að svara einhverju öðru en að vera sammála "góða svarinu".. Vitið þið hvað ég er að meina? Iðulega eru þetta samræður sem ég kæri mig aldrei um að taka þátt í. Undirritaðri finnast þetta viðbjóðsleg samskipti og lýsa þau einna mest sambandi hákarls og fylgifisks...(Til er tegund af hákarli sem hefur alltaf fylgifisk með sér sem hann borðar ekki en virðist þó ekki vernda). Fylgifiskurinn er lítill og kjánalegur við hliðina á stóra ógnvekjandi hákarlinum sem leggur lokadóminn á allt sem stefnt er á og aumlegur fiskurinn kemur með hvort sem honum líkar betur eða verr... Bara frekar flottræfilslegt og virkar svona kjánalegt bara.. Þegar konur haga sér með þessum hætti, að þurfa að hafa rétt fyrir sér í nærri öllu og vita allt best, finnst mér það virka eins og "standpínukeppni kvennana" Menn gera þetta nefnilega á aðeins öðruvísi hátt sjáiði...
Sérstaklega í ljósi þess að orðakvóti dagsins hjá þeim er ávallt minni (Í flestum tilfellum)..
Þetta var bara eitthvað sem ég varð að koma frá mér elskurnar;
En þið eruð yndisleg...Það er bara alveg þannig
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Dagsetning
7. febrúar 2012
Talning
Fyrir 1109 dögum
Daddara.....!
|